Hjartavél

Kontinuum

Compositor: Kontinuum

Ég brýni huga minn
Deyfi inntakið svo miðað geti á takmarkið
Að skapa fyrir almættið
Stoppa til að hlusta á gömul orð
Bergmála í höfðinu

Hvíl höfuð þitt á herðum mér
Hljóðlát við lútum höfðinu
Göngumenn í þokunni
Tvö níu volta batterí

Ég varpa skugga á daginn minn
Viljandi til að skilja litlu blæbrigðin
Skyndilega kyngir minningum
Um nokkrar vondar mínútur
Og blóðið sem fossaði úr munnvikum

Hvíl höfuð þitt á herðum mér
Byggjum okkur hjartavél
Göngumenn í þokunni
Tvö níu volta batterí

Alheimsvera, hljóðin berast
Naum hun virðist línan
Milli þessa heims og hinna
Merkin greinast
Í þúsund ár í fjörunni
Samvaxin batterí

Hér einn í fjöldanum
Leita að árshringjum í steypunni
Forðast að gjóa augunum
Að öllu fólkinu
Þöguli riddari

Hvíl höfuð þitt á herðum mér
Byggjum okkur hjartavél
Byggjum okkur hjartavél

©2003- 2024 lyrics.com.br · Aviso Legal · Política de Privacidade · Fale Conosco desenvolvido por Studio Sol Comunicação Digital